NóNu ungbarnahúfan er nýjasta vara NóNu. Þessi vara hefur verið lengi í vinnslu. Húfan er handprjónuð úr 100 % merinoull. Merinoullin er einstaklega mjúk og því fullkomin fyrir litlu krílin. Hún heldur hita vel ásamt því að tempra hann. Þessi húfa er frábær í vagninn, kerruna og bílstólinn.
Stærð 0-3 mánaða passar upp að ca 40 cm.
Stærð 3-6 mánaða passar upp að ca 45 cm.
Athugið að börn eru misjöfn og með misjafnt höfuðlag svo stærðir geta skarast.
100 % merinoull.
Íslensk hönnun og framleiðsla.